Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 13. maí 2022 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sex Íslandsmeistarar í 2. flokki í KFG (Staðfest)
Mynd: KFG
KFG styrkti sig fyrir komandi átök í 3. deild karla á lokadögum félagaskiptagluggans. Á lokadeginum sjálfum fékk liðið sex leikmenn frá Stjörnunni sem allir voru hluti af Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar í 2. flokki í fyrra.

Það eru þeir Benedikt Pálmason, Henrik Máni Hilmarsson, Hlynur Màr Friðriksson, Ingvar Atli Auðunarson, Róbert Kolbeins Þórarinsson og Sigurður Gunnar Jónsson sem alla má sjá á myndinni við fréttina.

Á lokadögum gluggans fékk KFG einnig þá Freymar Örn Ómarsson frá Einherja, Smári Sigurðsson frá Þrótti R. og Anton Logi Sigurpálsson frá Álftanesi.

KFG spilar sinn annan leik í 3. deildinni í kvöld þegar liðið mætir Augnabliki á útivelli klukkan 18:30. KFG tapaði 0-1 gegn Víði í 1. umferðinni.

Athugasemdir
banner
banner
banner