Fotbolti.net
13.06.14 - 16:51
Alexander Freyr Tamimi

David Luiz í PSG (Staðfest)

David Luiz er kominn í PSG.

David Luiz er kominn í PSG.

Canon

Mynd: Getty Images

Paris Saint-Germain hefur staðfest kaup sín á varnarmanninum David Luiz frá Chelsea.

Kaupverðið er ekki uppgefið, en talið er að hann hafi orðið dýrasti varnarmaður sögunnar og kostað meira en samlandi sinn, Thiago Silva.
Luiz vann Meistaradeildina með Chelsea árið 2012 og Evrópudeildina árið 2013 með Chelsea og átti hann frábært síðasta tímabil.

David Luiz gekk til liðs við Benfica úr heimalandinu árið 2007 og fór þaðan til Chelsea eftir að hafa verið valinn leikmaður ársins í Portúgal tímabilið 2009-10.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.