Fotbolti.net
13.06.14 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Pioli nýr þjálfari Lazio (Staðfest)

Pioli nýr þjálfari Lazio (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Stefano Pioli er formlega orðinn nýr þjálfari Lazio og tekur við af Edy Reja sem lét af störfum fyrr í vikunni. Pioli er fyrrum stjóri Bologna og situr fyrir svörum fyrir framan fjölmiðla í hádeginu.
Pioli var rekinn frá Bologna á liðnu tímabili og liðið féll svo úr ítölsku A-deildinni.

Lazio bauð Massimiliano Allegri fyrstum að fá starfið en þessi fyrrum þjálfari AC Milan hafnaði því tilboði.

Lazio hafnaði um miðja deild á Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.