Fotbolti.net
13.06.14 - 08:20
Daníel Freyr Jónsson

Roberto Martinez með nýjan fimm ára samning (Staðfest)

Roberto Martinez er samningsbundinn Everton til 2019.

Roberto Martinez er samningsbundinn Everton til 2019.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænski knattspyrnustjórinn Roberto Martinez hefur gert nýjam samning við Everton og mun hann stýra liðinu næstu fimm ár.
Martinez tók við Everton af David Moyes fyrir ári síðan og gerði hann frábæra hluti með félagið á sínu fyrsta ári. Undir hans stjórn hafnaði Everton í 5. sæti úrvalsdeildarinnar og rétt missti af sæti í Meistaradeild Evrópu.



Everon fékk 72 stig á tímabilinu, eða fleiri en nokkru sinni áður frá því úrvalsdeildin var sett á laggirnar. Enn fremur við góða stigasöfnun þá þótti Everton leika glimrandi skemmtilegan fótbolta.



,,Ég vissi frá þeirri stund sem ég kom til Everton að þetta væri sérstakur staður," sagði Martinez við undirskriftina.



,,Ég elskaði fyrsta tímabilið mitt hjá félaginu. Ég gæti ekki verið stoltari af frammistöðu Everton í gegnum allt tímabilið og þeim minningum sem við sköpuðum saman."

Heimild: Heimasíða Everton

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.