13.06.14 - 12:38
Magnús Már Einarsson
Sagna til Manchester City (Staðfest)

Bacary Sagna.

Mynd: Getty Images

Bacary Sagna.

Mynd: Getty Images
Franski bakvörðurinn Bacary Sagna mun ganga í raðir Manchester City í lok mánaðarins.
Samningur Sagna við Arsenal rennur út 30. júní og þá mun hann ganga til liðs við Manchester City á þriggja ára samningi.

Hinn 31 árs gamli Sagna kom til Arsenal frá Auxerre árið 2007 og hefur síðan þá leikið 284 leiki með félaginu.
,,Allir hjá Arsenal vilja þakka Bacary fyrir frábært framlag og óska honum alls hins besta í framtíðinni,\" segir í frétt á heimasíðu Arsenal í dag.
Sagna er ekki fyrsti leikmaðurinn sem fer frá Arsenal til Manchester City undanfarin ár en leikmenn eins og Samir Nasri, Gael Clichy, Emmanuel Adebayor og Kolo Toure hafa allir farið sömu leið.