Fotbolti.net
13.06.20 - 14:12
Ívan Guðjón Baldursson

McGoldrick framlengir við Sheffield (Staðfest)

McGoldrick hefur komið við sögu í 21 leik á úrvalsdeildartímabilinu.

McGoldrick hefur komið við sögu í 21 leik á úrvalsdeildartímabilinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United er búið að staðfesta að framherjinn David McGoldrick verður hjá félaginu til sumarsins 2022.
McGoldrick er 32 ára gamall og hefur aðeins skorað eitt mark í 22 leikjum á tímabilinu.

Hann gerði vel í Championship deildinni í fyrra en hefur ekki fundið taktinn í deild þeirra bestu.

Hann er þó talinn mikilvægur leikmaður í klefanum og fær þessi írski landsliðsmaður því samning að launum.

Nýliðar Sheffield eru óvænt í Evrópubaráttu í ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.