13.06.20 - 13:40
Ívan Guðjón Baldursson
Skallagrímur styrkir sig með tvíeyki úr Árborg (Staðfest)

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Skallagrímur er búinn að styrkja sig fyrir komandi átök 4. deildarinnar og var að krækja í tvo öfluga leikmenn úr Árborg.
Tómas Sjöberg Kjartansson og Magnús Helgi Sigurðsson heita þeir og eiga rétt tæplega 100 keppnisleiki að baki fyrir Árborg hvor.
Tómas er fæddur 1990 og spilar á miðjunni á meðan Magnús er fæddur 1988 og spilar sem framherji. Magnús á 55 mörk í 117 leikjum með Árborg og Ægi. Hann spilaði með Ægi í 3. deildinni og á einn leik að baki fyrir félagið í 2. deild.
Tómas hóf ferilinn hjá KFS og hefur einnig spilað fyrir Ægi. Hann á 18 leiki að baki fyrir Ægi, Hamar og Árborg í 2. deild karla.
Skallagrímur leikur í C-riðli fjórðu deildar. Þar má meðal annars finna Hamar frá Hveragerði.