Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 13. júní 2022 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guendouzi reynir að sannfæra Saliba að fara frá Arsenal
William Saliba.
William Saliba.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Matteo Guendouzi segist ætla að reyna að sannfæra miðvörðinn William Saliba um að yfirgefa Arsenal og koma til Marseille í Frakklandi.

Saliba þykir einn efnilegasti miðvörður í heimi. Hann er samningsbundinn Arsenal en var á láni hjá Marseille á síðasta tímabili og lék virkilega vel.

Guendouzi er fyrrum leikmaður Arsenal en hann náði ekki að koma sér inn í myndina hjá Mikel Arteta, stjóra liðsins. Hann vonast til að Saliba muni líka kveðja Lundúnafélagið.

„William er með Marseille í hjarta sínu núna og ég er viss um að hann komi aftur á næsta tímabili," sagði Guendouzi við Telefoot.

„Ég mun reyna að sannfæra hann um að koma hingað."

Saliba, sem er 21 árs, hefur sjálfur talað um að hann ætli að spila fyrir Arsenal á næsta tímabili, en Guendouzi mun reyna að tala hann til.
Athugasemdir
banner
banner
banner