Fotbolti.net
02.10.26 - 14:20
Elvar Geir Magnússon

Bara skólabörn á leik Englands og Króatíu

Króatía og Ísland mættust 2016 í Zagreb bak við luktar dyr.

Króatía og Ísland mættust 2016 í Zagreb bak við luktar dyr.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Leikur Englands og Króatíu í Þjóðadeildinni á morgun verður spilaður bak við luktar dyr í Rijeka.

Króatar eru í áhorfendabanni vegna hegðunar stuðningsmanna á landsleik gegn Frakklandi í París á síðasta ári. Sjö áhorfendur voru handteknir á þeim leik fyrir að heilsa að nasistasið og þá var kveikt í flugeldum á leiknum.

Auk þess að þurfa að spila fyrir framan nánast tómar stúkur á morgun þá var króatískum stuðningsmönnum bannað að mæta á síðasta leik liðsins í Tékklandi.
Þó áhorfendabann sé á leiknum á morgun hefur 3-6 þúsund skólakrökkum verið leyft að mæta. Upphaflega áttu ekki að vera neinir enskir áhangendur en enska fótboltasambandinu var svo úthlutað 100 miðum til stuðningsmanna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.