Fotbolti.net
02.10.26 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Samband forsætisráðherrans við eigendur Man City til umræðu

Burnham á minningarathöfn við Old Trafford í borgarstjóratíð sinni.

Burnham á minningarathöfn við Old Trafford í borgarstjóratíð sinni.

Canon

Mynd: EPA

Frjálslyndir demókratar kalla eftir því að Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, opinberi upplýsingar um alla fundi sína með eigendum Manchester City og geri grein fyrir boðum sem hann hefur þegið á Etihad leikvanginn.

Burnham sagði í vikunni að hann myndi hafa miklar áhyggjur ef Sjeik Mansour og félagar neyddust til að selja City vegna brota á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Þessi ummæli hans hafa hlotið mikla gagnrýni.

„Þeir hafa verið gríðarlega mikilvægir í að nútímavæða Manchester-borg og gera Manchester City að því alþjóðlega stórveldi sem félagið er í dag. Ég vil þakka City Football Group og eigendahópnum fyrir það fjármagn sem þeir hafa ekki aðeins varið í Etihad-leikvanginn og svæðið í kringum hann, heldur einnig í borgina sjálfa," sagði Burnham.
Man City hefur staðfest áfrýjun
TENGT EFNI

Man City hefur staðfest áfrýjun

Burnham var borgarstjóri í Manchester áður en hann varð forsætisráðherra í sumar og naut hann góðs af fjárfestingum eigenda City í borginni.

Hann er sjálfur stuðningsmaður Everton og mikill fótboltaáhugamaður en í borgarstjóratíð sinni var hann gestur á leikjum í heiðursstúkunni á Etihad-leikvangi Manchester City.

Anna Sabine hjá Frjálslyndum demókrötum setur spurningamerki við að Burnham hafi komið eigendum City til varnar.

„Það er furðulegt að forsætisráðherra skuli nýta stöðu sína til að draga í efa niðurstöður óháðrar rannsóknar. Þetta hefur verið erfitt ár fyrir orðspor fótboltans. Á tímum sem þessum vænta stuðningsmenn þess að forsætisráðherra þeirra standi vörð um gildandi reglur, fremur en að taka afstöðu með félagi sem hefur verið fundið sekt um að hafa brotið þær," segir Sabine.
Sjeik Mansour eigandi Manchester City og stjórnarformaðurinn Khaldoon Al Mubarak.

Sjeik Mansour eigandi Manchester City og stjórnarformaðurinn Khaldoon Al Mubarak.

Canon

Mynd: EPA

Hvað verður um Man City?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.