13.07.14 - 11:30
Grímur Már Þórólfsson
Luuk de Jong til PSV (Staðfest)

Luuk de Jong er farinn aftur til Hollands

Mynd: Getty Images

Luuk de Jong er farinn aftur til Hollands

Mynd: Getty Images
Hollenski framherjinn Luuk de Jong hefur gengið til liðs við PSV frá Borussia Monchengladbach en hann var á láni hjá Newcastle síðari hluta síðasta tímabils.
De Jong hefur ekki skorað í meira en ár en hann skoraði einungis 6 mörk í 36 leikjum fyrir Gladbach en hann var keyptur fyrir 12 milljónir evra, þá spilaði hann 12 leiki fyrir Newcastle án þess að skora mark.
Hann vonast því að finna sitt fyrra form hjá PSV en hann skoraði 39 mörk í 76 leikjum fyrir Twente. Þá hefur hann leikið 7 landsleiki fyrir Holland og skorað 1 mark.
Með PSV gæti hann mætt sínum gömlu félögum í Gladbach en bæði liðin spila í evrópukeppninni á komandi tímabili.

Heimild: Sky