Fotbolti.net
13.07.16 - 07:00
Jóhann Ingi Hafþórsson

Bertrand gerir fimm ára samning við Southampton (Staðfest)

Ryan Bertrand í leik með Southampton.

Ryan Bertrand í leik með Southampton.

Canon

Mynd: Getty Images

Ryan Bertrand hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Southampton.
Vinstri bakvörðurinn kom frá Chelsea árið 2014 en nýji samningurinn gildir til 2021.

Bertrand spilaði 34 leiki fyrir Southampton á síðustu leiktíð er liðið hafnaði í sjötta sæti og tryggði sér sæti í Evrópudeildinni á leiktíðinni sem senn hefst.

Hann var í hópnum hjá Englendingum á EM en hann spilaði aðeins í markalausa jafnteflinu við Slóvakíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.