Fotbolti.net
13.07.16 - 18:22
Elvar Geir Magnússon

Hörður Björgvin búinn að skrifa undir hjá Bristol (Staðfest)

Hörður Björgvin búinn að skrifa undir hjá Bristol (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Hörður Björgvin Magnússon hefur skrifað undir þriggja ára samning við enska Championship-deildarliðið Bristol City.

Hörður er 23 ára og getur spilað bæði sem miðvörður og vinstri bakvörður. Hann stóðst læknisskoðun í dag.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Lee Johnson, stjóri félagsins fær til sín fyrir komandi tímabil.

„Við höfum unnið að því síðan í lok síðasta tímabils að fá hann til okkar en það hefur tekið lengri tíma en við vonuðumst eftir,\" segir Johnson.

Hann telur að það muni taka Hörð einhvern tíma að aðlagast leikstílnum.

Bristol City hafnaði í 18. sæti í Championship, ensku B-deildinni, á síðasta tímabili og ætlar sér stærri hluti í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.