13.07.16 - 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lacina Traore til CSKA Moskva (Staðfest)

Traore er á leið aftur til Rússlands

Mynd: Getty Images

Traore er á leið aftur til Rússlands

Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn hávaxni Lacina Traore hefur verið lánaður frá AS Monaco til CSKA Moskva út komandi tímabil.
Hinn 25 ára gamli Traore er yfir tveir metrar á hæð, en hann skoraði tíu mörk í 27 leikjum fyrir Monaco á síðasta tímabili.
Rússnesku meistararnir í CSKA staðfestu þessar fregnir í dag, en hann var síðast lánaður frá Monaco til Everton árið 2014. Hann lék aðeins einn deildarleik með Everton í Englandi vegna meiðsla sem voru að hrjá hann.
„Ég er mjög ánægður með að vera orðinn leikmaður CSKA,\" sagði Traore í samtali við heimasíðu félagsins.
„Þetta er eitt besta félagið í Rússlandi. Ég hef nú þegar spilað í þessari deild og ég sá það að CSKA setur tóninn.\"
Traore kemur frá Fílabeinsströndinni. Hann á tíu landsleiki fyrir þjóð sína og hefur í þeim leikjum skorað fjögur mörk. Traore snýr núna aftur til Rússlands, en hann lék áður með Kuban Krasnodar og Anzhi Makhachkala í landinu.

Heimild: Sky Sports