Fotbolti.net
13.07.16 - 12:07
Elvar Geir Magnússon

Lucas Digne til Barcelona (Staðfest)

Digne í leik með Paris St-Germain.

Digne í leik með Paris St-Germain.

Canon

Mynd: Getty Images

Franski vinstri bakvörðurinn Lucas Digne hefur yfirgefið PSG og skrifað undir fimm ára samning við Barcelona.
Á heimasíðu Börsunga segir að þessi 22 ára leikmaður hafi verið keyptur á 16,5 milljónir evra en sú upphæð gæti skriðið yfir 20 milljónirnar eftir frammistöðu.

Digne vakti fyrst athygli þegar hann braut sér leið inn í aðallið Lille og var í kjölfarið keyptur til PSG 2013. Hann var svo lánaður til Roma í fyrra og mætti Barcelona í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Alls hefur hann spilað 148 leiki fyrir Lille, PSG og Roma, skorað sex mörk og lagt upp þrettán.

Hann er með mikinn hraða og fína tækni og vill taka virkan þátt í sóknarleiknum.

Sjá einnig:
Digne í viðtali við Fótbolta.net 2013
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.