13.07.16 - 18:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sergine Modou Fall semur við ÍR (Staðfest)

Fall er búinn að semja við ÍR

Mynd: Facebook - ÍR

Fall er búinn að semja við ÍR

Mynd: Facebook - ÍR
Topplið 2. deildar karla, ÍR er búið að ganga frá samningum við sóknarmanninn Sergine Modou Fall. Hann hefur leikið með Vestra í sumar, en mun nú klára leiktíðina með ÍR-ingum.
Fall hefur verið gríðarlega mikilvægur fyrir lið Vestra í sumar og skorað fimm mörk í níu deildarleikjum. Hann kom til BÍ/Bolungarvíkur í fyrra og hafði þá hægt um sig, en hann hefur látið meira til sín taka í sumar.
Hann mun fara í Breiðholtið og spila með ÍR. Það verður stórleikur í 2. deildinni á morgun þegar ÍR og Afturelding mætast í toppslag, en Fall mun ekki spila með í þeim leik. Félagsskipaglugginn opnar 15. júlí og þá verður hann löglegur.
„Fall er öskufljótur framherji sem mun styrkja strákaliðið okkar í baráttunni um að flytja liðið hærra í íslenskum fótbolta. Hann hefur í sumar verið lykilmaður í öflugu liði Vestra, leikið 13 leiki og skorað 7 mörk,\" segir í yfirlýsingu frá ÍR.
„Fæddur 1993 og hefur leikið knattspyrnu í Ítalíu, á Spáni og Noregi áður en hann kom til Íslands sumarið 2015 og fór þá vestur á firði.\"
„ÍR-ingar bjóða Fall hjartanlega velkominn til félagsins og við hlökkum til að sjá hann í hvítbláa búningnum.\"
Sjá einnig:
Bestur í 2. deild : Pape hjálpaði mér að komast að á Íslandi