Fotbolti.net
13.07.22 - 13:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ellefu árum síðar er Long mættur aftur til Reading (Staðfest)

Long í baráttunni við Birki Má Sævarsson í landsleik.

Long í baráttunni við Birki Má Sævarsson í landsleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Shane Long rann út á samningi hjá Southampton í síðasta mánuði og þurfti að finna sér nýtt félag í sumar. Hann er búinn að því og er kominn aftur á kunnulegar slóðir.

Hann er mættur aftur til Reading þar sem hann gerði flotta hluti á árunum 2005-2011. Long var þá fenginn frá Cork City á Írlandi.
Í 174 deildarleikjum með Reading hefur Long skorað 44 mörk. Hann getur bætt við þann fjölda í Championship deildinni á komandi tímabili.

Árið 2011 fór Long til WBA þar sem hann var í tvö og hálft tímabil. Svo var hann í hálft tímabil hjá Hull áður en hann fór til Southampton þar sem hann hefur svo verið hjá síðan.

Long er 35 ára framherji sem á að baki 88 landsleiki fyrir Írland og í þeim hefur hann skorað sautján mörk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.