Fotbolti.net
13.07.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Romagnoli er orðinn leikmaður Lazio (Staðfest)

Romagnoli í baráttu við Gerard Deulofeu leikmann Udinese.

Romagnoli í baráttu við Gerard Deulofeu leikmann Udinese.

Canon

Mynd: EPA

Lazio er búið að staðfesta komu varnarmannsins þaulreynda Alessio Romagnoli á frjálsri sölu eftir sjö ár í herbúðum AC Milan.

Hinn 27 ára gamli Romagnoli var fyrirliði Milan og lék 247 leiki fyrir félagið auk þess að spila 12 landsleiki fyrir Ítalíu.

Hann mun gegna lykilhlutverki í hjarta varnarinnar hjá Maurizio Sarri sem er að leiða Lazio í gegnum stórar breytingar á leikmannahópnum í sumar.

Romagnoli er fimmti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Lazio í sumar en félagið er einnig búið að losa sig við fimm leikmenn: Pepe Reina, Thomas Strakosha, Denis Vavro, Luiz Felipe og Lucas Leiva.

Romagnoli er fimmti leikmaðurinn sem kemur til félagsins eftir Nicolò Casale, Mario Gila, Marcos Antonio og Mattia Zaccagni sem lék þó með liðinu á láni með kaupskyldu á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.