Fotbolti.net
13.07.26 - 19:10
Brynjar Ingi Erluson

Hilmir Rafn skoraði tvö í sigri Sigma

Hilmir skoraði tvö mörk á síðustu tuttugu mínútunum

Hilmir skoraði tvö mörk á síðustu tuttugu mínútunum

Canon

Mynd: Sigma Olomouc

Hilmir Rafn Mikaelsson byrjar vel með nýja félagi sínu Sigma Olomouc en hann gerði bæði mörk liðsins í 2-0 sigri á Shabab Al-Ahli í Austurríki í dag.
Framherjinn samdi við Sigma eftir að hafa spilað með Noregsmeisturum Viking.

Hann var að spila sinn þriðja leik með Sigma, kom inn af bekknum á 62. mínútu og skoraði tvö mörk á síðustu tuttugu mínútunum gegn Shabab Al Ahli, sem hafnaði í 2. sæti úrvalsdeildarinnar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á síðustu leiktíð.

Hilmir og félagar eiga einn æfingaleik eftir í æfingaferðinni í Austurríki, en þeir mæta Al Sadd frá Katar á föstudaginn.

Tékkneska deildin hefst síðan 26. júlí og mætir Sigma þá Jablonec í fyrsta leik.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.