Fotbolti.net
13.07.26 - 19:20
Brynjar Ingi Erluson

Haaland sneri aftur til Noregs með uppstoppaðan þvottabjörn

Haaland sneri aftur til Noregs með uppstoppaðan þvottabjörn
Canon

Mynd: Eurofoot/X

Erling Braut Haaland og félagar hans í norska landsliðinu eru mættir aftur til Noregs eftir að hafa dottið út í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Haaland skoraði sjö mörk á sínu fyrsta heimsmeistaramóti, en Englendingar reyndust of stór biti fyrir Norðmenn sem gerðu þó þjóð sína stolta.

Framherjinn er kominn aftur til Oslóar, en það vakti mikla athygli þegar hann steig út úr flugvélinni.

Þar mátti sjá hann halda á uppstoppuðum þvottabirni sem hélt utan um tekílaflösku. Í síðustu viku birti Haaland myndbönd af nokkrum uppstoppuðum þvottabjörnum sem voru allir með áfengi við hönd og virðist hann hafa gripið einn með sér sem minjagrip.

Hægt er að sjá myndband af þessu hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.