Jason að nálgast toppform - „Gríðarlega ánægðir með að fá hann"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jason Daði Svanþórsson (1999) fær leikheimild hjá KR í vikunni og má spila með liðinu þegar Stjarnan kemur í heimsókn á Meistaravelli á sunnudag.
Jason er kominn í KR eftir tvö ár hjá Grimsby á Englandi. Hann spilaði ekki mikið á liðnu tímabili sem litaðist mikið af meiðslum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, segir að sinn maður sé að nálgast toppform. Óskar og Jason unnu saman hjá Breiðabliki á árunum 2021-23.

„Jason hefur komið frábærlega inn í hópinn, hann er óðum að komast í toppform. Við erum gríðarlega ánægðir með að fá hann bæði sem leikmann og persónuleika," segir Óskar.
Óskar Hrafn: Róbert Elís verður ekki endurkallaður
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 15 | +17 | 32 |
| 3 | Fram | 14 | +12 | 30 |
| 4 | Breiðablik | 13 | +7 | 22 |
| 5 | Valur | 15 | -5 | 19 |
| 6 | Keflavík | 13 | -6 | 16 |
| 7 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 8 | ÍBV | 14 | -7 | 15 |
| 9 | ÍA | 14 | -9 | 15 |
| 10 | KA | 14 | -8 | 13 |
| 11 | FH | 14 | -11 | 11 |
| 12 | Þór | 14 | -26 | 8 |