Dómari tók eigið líf eftir ásakanir um kynferðisbrot

Rob Dieperink.

Mynd: EPA

Rob Dieperink.

Mynd: EPA
Rob Dieperink, einn fremsti dómari Hollands, er látinn 38 ára að aldri. Hollenskir fjölmiðlar segja hann hafa tekið eigið líf.
Dieperink átti að starfa á HM í sumar en FIFA ákvað að taka hann frá verkefninu eftir að hann var sakaður um kynferðisbrot gegn unglingspilti. Það mál var látið niður falla vegna skorts á sönnunargögnum.

Dieperink sagðist vera mjög leiður yfir því að verða ranglega fyrir þessum ásökunum og að það væru vonbrigði að missa af HM.
Hann var sakaður um óviðeigandi snertingu og um að hafa reynt að fá umræddan dreng með sér upp á hótelherbergi fyrir leik Crystal Palace gegn Fiorentina í Sambandsdeild Evrópu í apríl, en hann hafði flogið til landsins til að dæma leikinn.
Þegar hann var að halda heim á leið eftir leikinn var hann handtekinn fyrir framan fólk á vegum UEFA.
Dieperink dæmdi fyrst í efstu deild Hollands 2017 og starfaði sem VAR dómari á EM landsliða 2024.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.