Fotbolti.net
13.08.13 - 22:30
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Wallace lánaður frá Chelsea til Inter (Staðfest)

Wallace

Wallace

Canon

Mynd: Getty Images

Internazionale á Ítalíu hefur fengið brasilíska leikmanninn Wallace á láni frá Chelsea út leiktíðina.
Wallace, sem er 19 ára gamall hægri bakvörður kom til Chelsea frá Fluminense í heimalandinu í sumar, en hann stóð sig afar vel með enska liðinu á undirbúningstímabilinu í sumar.

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur ákveðið að lána bakvörðinn unga til Inter á Ítalíu til þess að hann öðlist leikreynslu, en hann átti einnig í erfiðleikum með að fá atvinnuleyfi á Englandi.

Wallace er tólfti leikmaðurinn sem semur við Inter í glugganum, en Walter Mazzarri tók við liðinu í sumar. Fyrsti leikur Inter í deildinni verður þann 25. ágúst næstkomandi gegn Genoa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.