Fotbolti.net
13.08.14 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson

Chelsea lánar Christian Atsu til Everton (Staðfest)

Christian Atsu leikur með Everton á næsta tímabili.

Christian Atsu leikur með Everton á næsta tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Christian Atsu er kominn til Everton á eins árs lánssamning frá Chelsea.

Atsu er 22 ára gamall vinstri kantmaður og á 26 landsleiki að baki fyrir Gana þrátt fyrir ungan aldur.
Samstarf Chelsea og Everton heldur því áfram, en síðarnefnda félagið keypti Romelu Lukaku af Chelsea fyrr í sumar eftir að hafa fengið hann lánaðan síðasta tímabil.

Atsu á 17 leiki að baki fyrir Porto en hefur einnig leikið með Rio Ave og Vitesse á láni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.