13.08.14 - 16:37
Daníel Freyr Jónsson
Januzaj tekur við ellefunni af Giggs (Staðfest)

Adnan Januzaj.

Mynd: Getty Images

Adnan Januzaj.

Mynd: Getty Images
Hinn ungi Adnan Januzaj, leikmaður Manchester United, hefur tekið við treyju númer 11 eftir að Ryan Giggs lagði skónna á hilluna.
Enska stórliðið staðfesti þetta nú rétt í þessu, en þessi bráðefnilegi leikmaður hefur hingað til verið númer 44.
Enska stórliðið staðfesti þetta nú rétt í þessu, en þessi bráðefnilegi leikmaður hefur hingað til verið númer 44.
Giggs var ávallt númer 11 á þeim 23 árum sem hann lék með United, en hann hætti að spila í sumar og er í dag aðstoðarþjálfari liðsins.
Þá hefur einnig verið gefið út að Luke Shaw verði númer 3 og Ander Herrera mun klæðast treyju númer 21.
Þá hefur einnig verið gefið út að Luke Shaw verði númer 3 og Ander Herrera mun klæðast treyju númer 21.
Heimild: Heimasíða Man Utd
