13.08.14 - 18:51
Ívan Guðjón Baldursson
Pablo Armero og Diego Lopez til Milan (Staðfest)

Diego Lopez hirti byrjunarliðssætið hjá Real Madrid af Iker Casillas en er nú farinn eftir komu Keylor Navas.

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Diego Lopez og bakvörðurinn Pablo Armero eru komnir til AC Milan og er Adriano Galliani, framkvæmdastjóri félagsins, gífurlega ánægður með félagsskiptin.
Lopez, sem kemur frá Real Madrid, er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning en Armero kemur á eins árs lánssamning frá Udinese.

,,Ég hef mikla trú á báðum leikmönnum, við þekkjum þá vel og höfum verið að fylgjast með þeim í nokkurn tíma,\" sagði Galliani.
,,Við eigum í mjög góðum samskiptum við Real Madrid og það hjálpaði líklega til við að fá Lopez. Við spurðum Carlo Ancelotti og Villiam Vecchi, þjálfara og markmannsþjálfara Real, út í Lopez og þeir mældu með honum.
,,Við ætluðum að fá Armero í janúar en félagsskiptin fóru ekki í gegn vegna þess að Kevin Constant vildi ekki yfirgefa félagið. Nú er Constant farinn og Armero kominn, hann og Cristian Zapata eru meira eins og bræður heldur en liðsfélagar.\"