Njarðvík hefur fengið króatíska framherjann Ivan Prskalo aftur í sínar raðir.
Ivan skoraði fimm mörk í tólf leikjum síðari hluta tímabils í fyrra þegar Njarðvík féll úr næstefstu deild.
Hinn 25 ára gamli Ivan mun núna hjálpa Njarðvíkingum í toppbaráttunni í 2. deildinni en liðið er í 4. sæti, fjórum stigum frá toppliði Hauka.
Njarðvík mætir Haukum á útivelli annað kvöld en Ivan er kominn með leikheimild fyrir þann leik.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir