13.08.21 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Besiktas festir kaup á Ghezzal frá Leicester (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Alsírski kantmaðurinn Rachid Ghezzal er farinn frá Leicester City eftir misheppnaða dvöl í enska boltanum.
Ghezzal mun núna leika fyrir Besiktas í tyrkneska boltanum en hann var þar að láni á síðustu leiktíð og skoraði 8 mörk í 35 leikjum.
Leicester keypti Ghezzal á sínum tíma til að fylla í skarð Riyad Mahrez en það gekk ekki eftir. Alsíringurinn fann sig aldrei í enska boltanum og lék aðeins 23 leiki fyrir félagið áður en hann var lánaður út.
Besiktas greiðir 3 milljónir evra fyrir Ghezzal sem er 29 ára gamall og hefur skorað 2 mörk í 19 leikjum fyrir Alsír, enda í beinni samkeppni við Mahrez um byrjunarliðssæti.