13.08.21 - 15:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Joe Willock keyptur til Newcastle (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Newcastle er búið að festa kaup á Joe Willock frá Arsenal. Kaupverðið er óuppgefið en talið er að Newcastle greiði um 25 milljónir punda fyrir miðjumanninn.
Willock skrifar undir sex ára samning við Newcastle en hann skoraði átta mörk í einungis fjórtán leikjum á láni hjá Newcastle á síðasta tímabili.
Willock skrifar undir sex ára samning við Newcastle en hann skoraði átta mörk í einungis fjórtán leikjum á láni hjá Newcastle á síðasta tímabili.
Hann kom á láni í janúar og náði því merka afreki að verða yngsti leikmaður í sögunni til að skora mark í sjö leikjum í röð í úrvalsdeildinni.
Willock verður númer 28 á leiktíðinni og Newcastle staðfestir að hann geti spilað gegn Aston Villa í annarri umferð deildarinnar.
Willock verður númer 28 á leiktíðinni og Newcastle staðfestir að hann geti spilað gegn Aston Villa í annarri umferð deildarinnar.
✍️ #NUFC are thrilled to announce the signing of Joe Willock on a long-term deal.
— Newcastle United FC (@NUFC) August 13, 2021
Welcome back, @Joewillock! 😍
⚫️⚪️
