Fotbolti.net
13.08.21 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Meslier framlengir við Leeds til 2026 (Staðfest)

Meslier framlengir við Leeds til 2026 (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franski markvörðurinn Illan Meslier hefur skrifað undir nýjan samning við Leeds og er nú samningsbundinn enska úrvalsdeildarfélaginu til sumarsins 2026.

Þessi 21 árs Frakki átti virkilega gott fyrsta tímabil með Leeds í ensku úrvalsdeildinni og er talinn meðal bestu ungu markvarða í heimi.
Hann lék 35 leiki á síðasta tímabili, hélt markinu hreinu í ellefu af þeim og hjálpaði Leeds að enda í níunda sæti.

Þá sló hann fjórtán ára gamalt úrvalsdeildarmet Joe Hart með því að halda marki sínu hreinu átta sinnum áður en hann varð 21 árs gamall.

Leeds hefur leik þetta tímabilið í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu á morgun, með því að spila gegn Manchester United á Old Trafford.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.