Fotbolti.net
13.08.21 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rodri framlengir við KA (Staðfest)

Rodri framlengir við KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rodri er búinn að skrifa undir nýjan samning við KA og er nú samningsbundinn út tímabilið 2023. Gamli samningur hans átti að renna út eftir þetta tímabilið.

Rodri er 32 ára gamall Spánverji sem leikið hefur á Íslandi frá árinu 2014. Hann spilaði fyrst með Sindra í 2. deild áður en hann gekk í raðir Grindavíkur.

Rodri skoraði sín fyrstu mörk fyrir KA á dögunum þegar hann jafnaði í tvígang fyrir liðið í 2-2 jafntefli gegn Víkingi í Pepsi Max-deildinni.

Rodri hefur leikið 32 leiki fyrir KA í deild og bikar og gæti leikið sinn 33. leik á sunnudag þegar Stjarnan kemur í heimsókn til Akureyrar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.