13.08.21 - 09:18
Elvar Geir Magnússon
Van Dijk semur við Liverpool til 2025 (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Liverpool

Mynd: Heimasíða Liverpool
Virgil van Dijk, einn besti varnarmaður heims, hefur framlengt samning sinn við Liverpool til sumarsins 2025. Hann segist hæstánægður og stoltur eftir undirritunina.
Þessi þrítugi leikmaður var samningsbundinn til 2023 en fylgir í fótspor Trent Alexander-Arnold, Fabinho og Alisson sem allir gerðu nýja samninga fyrr í sumar.

Meiðsli gerðu að verkum að Van Dijk spilaði aðeins fimm deildarleiki á síðasta tímabili. Hann mætti aftur í slaginn á undirbúningstímabilinu og verður væntanlega með Liverpool frá fyrsta leik á þessu tímabili.
Van Dijk átti risastóran þátt í því að Liverpool vann Englandsmeistaratitilinn 2020 en meiðsli hans og fleiri varnarmanna settu stórt strik í reikninginn á síðasta tímabili.
Van Dijk er landsliðsmaður Hollands en ákvað að spila ekki á EM alls staðar í sumar til að einbeita sér að endurhæfingunni.
Þessi fyrrum varnarmaður Celtic og Southampton hefur spilað 130 leiki í öllum keppnum fyrir Liverpool. Hans lið hefur leik á morgun í ensku úrvalsdeildinni, gegn Norwich á útivelli.

He’s 𝑶𝑼𝑹 centre-half ✊
— Liverpool FC (@LFC) August 13, 2021
The story continues… @VirgilvDijk 🤩 pic.twitter.com/bQInOG1ba2