Fotbolti.net
13.08.21 - 16:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vestergaard til Leicester (Staðfest)

Vestergaard til Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester City staðfesti í dag kaup sín á varnarmanninum Jannik Vestergaard frá Southampton.

Kaupverðið er óuppgefið en ert talið vera um fimmtán milljónir punda samkvæmt heimildum Sky Sports.
Vestergaard er 29 ára miðvörður sem gekk í raðir Southampton frá Borussia Mönchengladbach árið 2018. Hann er tæpir tveir metrar á hæð og á að baki 29 leiki fyrir danska landsliðið.

Vestergaard skrifar undir þriggja ára samning við Leicester. Samkvæmt upplýsingum Sky Sports tókst að skrá Vestergaard fyrir hádegi í dag og því getur hann spilað með Leicester gegn Wolves á morgun.

Johnny Evans glímir við meiðsli og Wesley Fofana verður þá frá í lengri tíma vegna meiðsla. Daniel Amartey og Caglar Soyuncu spiluðu í miðvörðunum gegn Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn um síðustu helgi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.