Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. ágúst 2022 20:23
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Brentford og Man Utd: De Gea og félagar þristaðir
Mynd: Getty Images

Lokaleikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni var viðureign Brentford gegn Manchester United.


Búist var við nokkuð spennandi leik en það varð ekkert úr því vegna þess að heimamenn í Brentford gerðu sér lítið fyrir og völtuðu yfir Rauðu djöflana.

David de Gea var versti maður vallarins með 3 í einkunn frá Sky Sports en enginn liðsfélagi hans úr byrjunarliðinu fékk yfir 5. Portúgalirnir Cristiano Ronaldo og Diogo Dalot voru bestir í liði Man Utd með 5 í einkunn.

Raphael Varane, Scott McTominay og Tyrell Malacia sem var skipt inn í hálfleik fá allir 6.

Sagan er önnur í liði Brentford þar sem Bryan Mbeumo og Ivan Toney voru bestir með 9 í einkunn. 

Verstu leikmenn Brentford fengu 7 fyrir sinn þátt. Ben Mee og Mathias Jensen skoruðu sitthvort markið og fá áttur.

Brentford: Raya 7; Roerslev 7, Jansson 7, Mee 8; Hickey 7, Norgaard 7, Jensen 8, Dasilva 7, Henry 7; Mbuemo 9, Toney 9
Varamenn: Janelt 6, Wissa 6

Man United: De Gea 3; Dalot 5, Maguire 4, Martinez 3, Shaw 4; Fred 3, Fernandes 3, Eriksen 3; Sancho 4, Ronaldo 5, Rashford 4
Varamenn: Varane 6, McTominay 6, Malacia 6


Athugasemdir
banner
banner
banner