Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 13. ágúst 2022 20:36
Ívan Guðjón Baldursson
Haaland með tvær heppnaðar sendingar gegn Bournemouth
Haaland skoraði bæði mörk City í 0-2 sigri gegn West Ham í fyrstu umferð.
Haaland skoraði bæði mörk City í 0-2 sigri gegn West Ham í fyrstu umferð.
Mynd: EPA

Erling Braut Haaland hafði hljótt um sig er Manchester City lagði Bournemouth að velli í þægilegum sigri í dag.


Haaland var í byrjunarliðinu og gaf stoðsendingu í leiknum en það hefur vakið athygli að hann átti tvær heppnaðar sendingar í öllum leiknum. Stoðsendingin var því ein af aðeins tveimur heppnuðum sendingum gegn nýliðum Bournemouth.

Norðmaðurinn öflugi spilaði ekki illa í leiknum heldur fékk hann boltann sárasjaldan. Bournemouth varðist mjög aftarlega og var alltaf með nokkra menn á Haaland sem fann aldrei pláss. Hann dró varnarmennina í sig og skapaði þannig pláss fyrir samherjana sína í 4-0 sigri.

Haaland hefði getað skorað minnst tvö mörk í leiknum en fékk ekki boltann þrátt fyrir að koma sér stundum í frábærar staðsetningar. Það var nokkrum sinnum sem liðsfélagar hans létu frekar vaða sjálfir heldur en að senda boltann þar sem það stafaði hvort sem er alls engin ógn af Bournemouth í leiknum.

Það hefur enginn leikmaður í byrjunarliði Pep Guardiola hjá Man City átt svona fáar sendingar í leik áður. Þetta er því nýtt met hjá metabrjótinum Haaland.


Athugasemdir
banner