Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 13. ágúst 2022 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Láki glotti: Hann fékk engu um það ráðið
Lengjudeildin
Alexander Már
Alexander Már
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Ion Perelló Machi mun leika með Þór næsta sumar en hann kom til félagsins frá Hetti/Huginn fyrir lok félagsskiptagluggans.


Hann, ásamt Alexander Má Þorlákssyni hafa gjörbreytt liði Þórs og eru þeir orðnir lykilmenn í liðinu eftir örfáar vikur hjá félaginu.

„Gríðarlega góður leikmaður og frábær karakter, mjög gott að vera búinn að tryggja hann fyrir næsta tímabil og Alexander verður líka áfram," sagði Þorlákur í viðtali við Fótbolta.net.

Alexander er sonur Þorláks en hann var spurður hvort það væri eitthvað tvísýnt hvort sonurinn yrði áfram.

„Nei hann fékk engu ráðið um það," sagði Þorlákur og glotti.


Láki: Dómarinn gerir stór mistök - Aldrei rautt spjald
Athugasemdir
banner
banner