Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 13. ágúst 2022 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Leikmenn og starfsmenn greiddu sig inn á Hellissandi
Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Í gærkvöldi áttust við Reynir Hellissandi og Kría á Ólafsvíkurvelli þar sem leikar enduðu 2-4 gestunum í vil.


Allur ágóði rann til styrktar Birnu Kristmundsdóttur sem er ung kona og móðir frá Grundarfirði sem er að berjast við illvígan sjúkdóm.

Birna er einnig systir Brynjars Kristmundssonar aðstoðarþjálfara Víkings Ólafsvík og spilandi þjálfara Reynis. Vel var mætt og voru frjáls framlög í stúkunni.

Allir leikmenn og starfsmenn Kríu borguðu sig inn á leikinn og tóku veglegan þátt í þessu verðuga málefni. Félagið bætti svo 50 þúsund krónum við.

Reikningsupplýsingar söfnuninnar:
Kennitala: 191288-2039
Reikningsnúmer: 0191-26-138


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner