lau 13. ágúst 2022 10:20
Aksentije Milisic
Man Utd vill fá Ziyech - Depay til Englands?
Powerade
Mun þessi spila í rauðu?
Mun þessi spila í rauðu?
Mynd: EPA
West Ham hefur áhuga.
West Ham hefur áhuga.
Mynd: Getty Images
Hvað verður um Youri?
Hvað verður um Youri?
Mynd: EPA
Dest gæti endaði í Man Utd.
Dest gæti endaði í Man Utd.
Mynd: Getty Images

Ziyech, Pulisic, Jorginho, Depay, Ronaldo, Hwang, Gibbs-White, Ndombele og fleiri eru í slúðurpakkanum þennan laugardaginn.
BBC tók allt það helsta saman.
___________________________________


Manchester United vill kaupa hinn 29 ára gamla Hakim Ziyech, leikmann Chelsea, en félagið hafði einnig áhuga á Timo Werner en hann gekk í raðir RB Leipzig frá Chelsea á dögunum. (Manchester Evening News)

Juventus mun reyna að fá Jorginho (30), leikmann Chelsea, ef liðinu tekst að losa sig við Adrien Rabiot (27), til Manchester United. (Express)

Newcastle United er sagt hafa áhuga á Christian Pulisic (23), leikmanni Chelsea. (The Athletic)

West Ham er búið að bjóða ágætis summu í Memphis Depay en hann er 28 ára gamall framherji Barcelona. (Football Insider)

Hinn 37 ára gamli Cristiano Ronaldo mun vera áfram hjá Manchester United þrátt fyrir að hann hafi verið orðaður við hinu ýmsu lið. Það þarf eitthvað mikið að gerast til þess að hann fari undir lok gluggans. (AS)

Bordeaux er búið að samþykkja 3,4 milljóna punda tilboð frá Nottingham Forest í framherjann Hwang Ui-jo. Hann er 29 ára gamall og kemur frá Suður Kóreu. (L'equipe)

Forest ætlar þá að bjóða 30 milljónir punda í leikmann Wolves, hinn 22 ára gamla Morgan Gibbs-White. Áður hafði félagið boðið 25 milljónir punda en því var hafnað. (Mirror)

Napoli hefur náð samkomulagi við Tottenham um að fá Tanguy Ndombele (25) á láni. Napoli mun svo hafa forkaupsréttindi á leikmanninum eftir tímabilið. (Fabrizio Romano)

Willian er að ganga í raðir Fulham á Englandi en hann rifti samning sinn við Corinthians á dögunum. (Nicola Schira)

Fulham vill þá fá framherjann Bamba Dieng (22), frá Marseille í Frakklandi. (90 min)

Helsta skotmark Manchester United þessa daganna er framherji Stuttart, Sasa Kalajdzic en þessi 25 ára gamli leikmaður vill ganga í raðir Man Utd. (Sky Sports)

Leicester City er tilbúið í að missa Youri Tielemans (25) frítt eftir þetta tímabil nema það komi ásættanlegt tilboð í leikmanninn. Arsenal hefur haft áhuga á honum. (Times)

Bayern Munchen hefur fylgst með Kai Havertz (23), sóknarmanni Chelsea, en félagið gerir sér grein fyrir að það yrði erfitt að klófesta hann í sumar. (Sport)

Hector Bellerin, hægri bakvörður Arsenal, hefur verið boðinn til Barcelona en þessi 27 ára gamli leikmaður er að vinna í því að fá samningi sínum við Arsenal rift. (Mundo Deportivo)

Manchester United er í viðræðum við Barcelona um hægri bakvörðinn Sergino Dest (21). Spænska liðið vill fá 17 milljónir punda fyrir leikmanninn. (Sport)

Hinn 32 ára gamli Alex McCarthy er orðaður við Manchester United en félagið er að leitast eftir varamarkmanni fyrir David De Gea. (90min)

Ander Herrera er klár í að fara aftur til uppeldisfélags sitt, Athletic Bilbao, ef þessi 32 ára gamli leikmaður nær að semja um starfslok við PSG. (L'equipe)

Chelsea er að reyna fá hinn 19 ára gamla leikmann Inter Milan, Cesare Casadei, en Serie A liðið vill fá 15 milljónir punda fyrir leikmanninn. (La gazzetta dello sport)

Bruno Lage, stjóri Wolves, er að pressa á Wolves til að bjóða Ruben Neves (25) hundrað þúsund pund í vikulaun til þess að fæla burt áhuga frá Manchester United og Arsenal. (Sun)


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner