Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. ágúst 2022 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Nico fer til Valencia og framlengir við Barca (Staðfest)
Mynd: EPA

Miðjumaðurinn Nico Gonzalez er farinn út á lán til Valencia og framlengdi hann samninginn við Barcelona í leiðinni.


Nico er núna með samning til 2026 og gæti fengið mikilvægt hlutverk í liði Valencia sem er á mikilli niðurleið undir eignarhaldi Peter Lim, sem er vægast sagt hataður af stuðningsmönnum félagsins.

Hann er aðeins 20 ára gamall en spilaði þó 37 leiki fyrir Barca á síðustu leiktíð og á tíu leiki að baki fyrir yngri landslið Spánar.

Xavi hefur miklar mætur á Nico og hafði hugsað sér að nota hann á tímabilinu. Leikmaðurinn vill meiri spiltíma heldur en þann sem Barca getur boðið og krafðist þess að vera lánaður út.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner