Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 13. ágúst 2022 13:56
Aksentije Milisic
Willum átti að byrja gegn PSV en getur það ekki
Willum í leik á undirbúningstímabilinu.
Willum í leik á undirbúningstímabilinu.
Mynd: Go Ahead Eagles

Willum Þór Willumsson, leikmaður Go Ahead Eagles, missir af leik liðsins gegn PSV í dag en liðin mætast klukkan 16:45 í hollensku úrvalsdeildinni.


Samkvæmt heimildum Fótbolta.net átti Willum að vera í byrjunarliði Eagles en hann hefur dregið sig úr hópnum. Willum fékk spark í hásinina í síðasta leik liðsins og því verður hann ekki með í leiknum í dag.

Willum var í byrjunarliði Go Ahead Eagles sem tapaði fyrir AZ Alkmaar í fyrstu umferð deildarinnar en þar var hann að þreyta frumraun sína með liðinu.

Willum kom til liðsins frá BATE í Hvíta-Rússlandi í sumar en hann hafði spilað mjög vel á undirbúningstímabilinu í Hollandi.


Athugasemdir
banner
banner