Fotbolti.net
13.08.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Franski boltinn

Emery: Kvaratskhelia getur unnið Ballon d'Or

Emery: Kvaratskhelia getur unnið Ballon d'Or
Canon

Mynd: EPA

Unai Emery, stjóri Aston Villa, hefur trú á því að Khvicha Kvaratskhelia geti unnið Ballon d'Or í ár.

Kvaratskhelia kom PSG yfir þegar liðið vann Aston Villa 2-1 í Ofurbikar Evrópu í gær.
Georgíumaðurinn hefur skorað ófá mörk eins og hann gerði í gær. Hann var vinstra megin í teignum, leitaði á hægri fótinn og negldi boltanum í netið.

„Hann hafði stórkostleg áhrif á Napoli fyrir tveimur árum og núna hjá PSG. Hann skoraði frábært mark í dag. Hann skoraði mark eins og hann gerir venjulega, við reyndum að koma í veg fyrir það en gæðin í skotinu eru frábær," sagði Emery.

„Það er ekki mín ákvörðun en hann getur unnið Ballon d'Or."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.