Fotbolti.net
13.08.26 - 09:59
Kári Snorrason

Furðulegar lokamínútur hjá Fulham og Malaga - Tók vítaspyrnu í autt mark

Gonzalo Garcia gekk til liðs við Fulham fyrr í sumar.

Gonzalo Garcia gekk til liðs við Fulham fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Fulham

Það var vægast sagt áhugaverður endir á æfingaleik Fulham og Malaga sem fram fór á Spáni í gær.

Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn og héldu Arbeloa, sem hafði fengið að líta rauða spjaldið á lokamínútunum, og lærisveinar hans hjá Fulham beint inn í klefa.

Spænska liðið var hins vegar ekki á sama máli og taldi að vítaspyrnukeppni þyrfti til að útkljá sigurvegara, enda Costa del Sol-bikarinn í húfi.
Áhorfendur biðu því eftir vítaspyrnukeppni þegar spænski framherjinn Eneko Jauregi tók málin í sínar eigin hendur. Hann lagði boltann á vítapunktinn og skoraði í autt mark Fulham.

Við það fögnuðu stuðningsmenn Málaga og Jauregi fagnaði með liðsfélögum sínum. Leikurinn fór fram á heimavelli Malaga.

Í tilkynningu eftir leik hélt Fulham því hins vegar fram að bæði lið hefðu fyrir leikinn samþykkt að viðureigninni myndi ljúka með jafntefli án vítaspyrnukeppni ef staðan væri jöfn að loknum venjulegum leiktíma.



Arbeloa fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiks.

Arbeloa fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiks.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.