Fotbolti.net
13.08.26 - 20:44
Kristján Hrafn Kristjánsson

Ibrahima Blade: Það var erfitt að horfa á liðið í Evrópukeppni

Auglýsing
Ibrahima Balde kom til baka eftir meiðsli

Ibrahima Balde kom til baka eftir meiðsli

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Vestri og ÍR mættust í 18. umferð Lengjudeildarinnar fyrr í kvöld. Leikurinn endaði með langþráðum 1-0 sigri Vestra. 

Ibrahima Balde, sóknarmaður Vestra koma til baka eftir meiðsli og skoraði sigurmark leiksins. Fótbolti.net ræddi við hann eftir leik.

Lestu um leikinn: Vestri 1 - 0 ÍR

„Mér líður vel, ég er búinn að vera meiddur í fimm vikur. Þetta var erfitt vegna þess að ég hef ekki verið að hlaupa mikið undanfarið, svo ég gat ekki spilað mjög mikið, en ég er sáttur með leikinn". Sagði Ibrahima Balde eftir leik.


Balde skoraði eina mark leiksins með bakfallspyrnu, Segðu mér aðeins frá markinu.

„Við höfum verið að vinna mikið í föstu leikatriðunum síðustu vikur. Ég talaði við Jonathan (aðstoðarþjálfara Vestra) og hann sagði mér að fara til markmannsins og trufla hann. Síðan datt boltinn fyrir mig og ég skoraði fyrir framan markmanninn".



Balde meiddist í fyrsta leiknum gegn Qarabag í forkeppni Evrópudeildarinnar og missti þar með af öllum evrópuleikjum Vestra, Var erfitt að horfa upp á liðið í spila í evrópukeppnum?

„Það var erfitt að horfa á liðið í Evrópu, ég var búinn að bíða eftir þessu tækifæri í langan tíma og síðan meiddist ég eftir fimm mínútur, eftir það gat ég því miður ekki notið þess að spila evrópuleikina. Ég er glaður að vera komin til baka, það er það mikilvægasta".


Vestri á fjóra leiki eftir á tímabilinu, hvernig lýst þér á framhaldið?

Núna er það bara einn leikur í einu, við ætlum ekkert að gefa eftir og reyna að vinna alla leikina".


Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.