Fotbolti.net
13.08.26 - 21:43
Brynjar Ingi Erluson

Víkingar fá Borac aftur í heimsókn

Úr leik Víkings og Borac fyrir tveimur árum

Úr leik Víkings og Borac fyrir tveimur árum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur fékk að vita í kvöld hvaða liði það mætir í umspili Sambandsdeildarinnar, en þar bíður kunnuglegur mótherji.
Íslandsmeistarar Víkings unnu Thun, 3-2, í kvöld en sigurinn dugði ekki til að snúa einvíginu við. Víkingar fara því í umspil Sambandsdeildarinnar.

Fyrirfram var ljóst að þar myndi liðið mæta annað hvort Borac Banja Luka frá Bosníu og Hersegóvínu eða Vitebsk frá Hvíta-Rússlandi.

Borac vann fyrri leikinn 1-0 en Vitebsk var 1-0 yfir eftir venjulegan leiktíma í kvöld. Bæði lið skoruðu í framlengingunni og því þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegara.

Þar hafði Borac betur, 4-2, og tryggði sér einvígi gegn Víkingi.

Bosníumenn fá þar tækifæri til að hefna fyrir tapið gegn Víkingi í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar árið 2024. Víkingar unnu þá 2-0 sigur með mörkum Nikolaj Hansen og Karls Friðleifs Gunnarssonar á Kópavogsvelli.

Fyrri leikurinn fer fram hér heima 20. ágúst og sá síðari í Banja Luka viku síðar.

Víkingur freistar þess að komast í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar í annað sinn í sögu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.