Gylfi: Ég er með frekar vonlausan þumal

Gylfi skoraði markið sitt úr þessu skoti

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Örlygur sem er þarna að taka í spaðann á Gylfa lagði upp markið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi skoraði markið sitt úr þessu skoti

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er svekkjandi að vera úr, en jákvætt að vinna meistarana frá Sviss," sagði Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður Víkinga eftir 3-2 sigur gegn FC Thun í forkeppni Evrópudeildarinnar. Einvígið tapaðist hins vegar 5-3.
„Það er auðvitað svekkjandi að lenda undir, ná að jafna, lenda síðan aftur undir, þetta voru frekar ódýr mörk. Eins og eiginlega bara öll mörkin á móti þeim, öll þannig séð eftir fast leikatriði. Eitt eftir innkasti, og hin fjögur eftir aukaspyrnur eða horn. Það er svona mest svekkjandi í þessu, vorum að spila á móti mjög góðu liði. En við höldum áfram," sagði Gylfi.
Víkingar voru mjög góðir í dag og áttu meira skilið úr leiknum, en þá svíður það enn frekar að hafa ekki náði í betri úrslit í fyrri leiknum.
„Já, leikurinn úti, við vorum undir fyrstu 30-35 mínúturnar, þeir voru mjög góðir þá. Mjög góðir í löngu boltunum og vinna fyrstu boltana, og sóttu svo hratt á okkur. Eftir það þá spiluðum við ágætlega úti, auðvitað mjög svekkjandi að fá á sig þetta þriðja mark á 94. mínútu. Svona heilt yfir einvígið fannst mér við bara spila vel á móti mjög góðu liði. Þetta lið vann deildina gegn Basel og Young Boys, þannig þetta eru ekki einhverjir vitleysingar," sagði Gylfi.
Gylfi virtist hafa meitt sig á hendinni í leiknum og margir voru farnir að óttast það að þetta væri eitthvað alvarlegt því hann virtist sárkvalinn. Sem betur fer var þetta síðan ekkert stórmál.
„Ég bara beyglaði þumalinn, ég er búinn að vera með það síðan ég var örugglega 20 ára. Ég er með frekar vonlausan þumal, ég lenti bara eitthvað í maganum á honum og hann beyglaðist," sagði Gylfi.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Viktor Örlygur sem er þarna að taka í spaðann á Gylfa lagði upp markið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
