Fotbolti.net
13.08.26 - 21:18
Sigurjón Árni Torfason

Drullusvekktur Kári: Dýr mistök

Auglýsing
Kári var eðlilega svekktur eftir tap í dag

Kári var eðlilega svekktur eftir tap í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Þróttur heimsótti Grindavík á Stakkavíkurvöllinn í dag í 18. umferð Lengjudeildar karla. Grindavík hafði betur, 2-1, í hörkuleik þar sem mikið gekk á. Þróttarar reyndu hvað þeir gátu að sækja jöfnunarmarkið undir lokin en allt kom fyrir ekki og stigin þrjú urðu eftir í Grindavík. Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum og heyrði í Kára að leik loknum.
Lestu um leikinn: Grindavík 2 - 1 Þróttur R.
„Bara drullusvekkjandi, náttúrulega bara hver leikur úrslitaleikur fyrir öll þessi lið þannig að það var mikið undir hérna í dag. Voðalega leiðinlegt að þetta féll ekki með okkur."

Þróttarar voru sterkari aðilinn megnið af leiknum og mættu mun kraftmeiri til leiks í seinni hálfleiknum. Sigurvin hefur greinilega haldið góða ræðu í hálfleik því Þróttarar komu af miklum krafti út úr klefanum. Þeir fengu vítaspyrnu áður en mínúta var liðin af síðari hálfleik og Kári steig á punktinn og skoraði af öryggi.

„Að reyna að keyra á þetta, nóg eftir, við erum búnir að fá færin, þannig vantaði bara að þetta myndi detta fyrir okkur í seinni. Það var frábært að ná markinu snemma, þá fékk maður góða tilfinningu og við vorum svo sem með þá þarna alveg fyrri partinn í seinni. Síðan var þetta einn seinni bolti sem klikkaði og þeir komnir í gegn, þannig að þetta eru bara dýr mistök sem gerðu það að verkum að við fórum með núll stig."

Þróttur fær Fylki í heimsókn í næstu umferð þar sem fram undan er algjör toppslagur og gríðarlega mikilvæg stig í húfi fyrir bæði lið.

„Við hljótum að mæta helvíti gíraðir bara. Erum búnir að tapa stigum í síðustu tveimur leikjum í röð þannig að núna er bara að snúa þessu við, sækja sigur, það þýðir ekkert annað."

Sagði Kári við Blaðamann Fótbolta.net eftir leik
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.