Fotbolti.net
13.08.26 - 21:02
Brynjar Ingi Erluson

Tómas Bent skoraði frábært mark gegn Benfica

Tómas Bent skoraði með þrumufleyg

Tómas Bent skoraði með þrumufleyg

Canon

Mynd: Hearts/Skjáskot

Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon skoraði frábært mark er Hearts gerði 1-1 jafntefli við Benfica í síðari leik liðanna í 3. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
Hearts var að spila upp á stoltið í kvöld eftir að hafa tapað fyrri leiknum 6-1.

Tómas Bent byrjaði á bekknum en kom inn á í síðari hálfleik og skoraði síðan opnunarmark leiksins með laglegu skoti af 20 metra færi á 77. mínútu leiksins.

Sjáðu markið hér

Það dugði ekki til að knýja fram sigur því mínútu síðar jafnaði Dodi Lukebakio fyrir Benfica.

Niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli og er Hearts dottið niður í umspil Sambandsdeildarinnar þar sem það mætir Rapid Vín.

Hjörtur Hermannsson var í byrjunarliði IFK Göteborg sem datt úr leik í forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir að hafa gert 1-1 jafntefli við Gent.

Gautaborg þurfti sigur til að komast áfram eftir að hafa tapað fyrri leiknum 1-0. Kolbeinn Þórðarson kom inn af bekknum hjá Gautaborg þegar hálftími var eftir.

Eyþór Martin Björgólfsson var þá ekki með Motherwell sem vann 2-0 sigur á HJK frá Finnlandi. Motherwell er komið í umspilið þar sem liðið mætir Freiburg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.