Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 13. september 2019 20:13
Ívan Guðjón Baldursson
Tuchel: Get ekki stjórnað viðbrögðum stuðningsmanna
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel hefur varað Neymar við því að stuðningsmenn Paris Saint-Germain verði líklegast ekki alltof vinalegir þegar hann byrjar að spila aftur fyrir félagið.

Neymar var frá vegna meiðsla í sumar. Hann var orðinn heill heilsu fyrr á tímabilinu en var ekki í hópi hjá PSG vegna viðræðna við Barcelona um félagaskipti.

Skiptin gengu ekki í gegn fyrir gluggalok og verður Neymar því í höfuðborg Frakklands þar til í janúar hið minnsta.

„Ég skil að ekki allir stuðningsmenn séu sáttir með Neymar eftir allt sem hefur gerst. Ég get því miður ekki stjórnað viðbrgöðum stuðningsmanna og ég er búinn að ræða við Neymar um þetta," sagði Tuchel.

„Lífið er þó ekki alltof erfitt fyrir Neymar. Að búa í París og spila fyrir PSG er ekki erfitt líf.

„Neymar er leikmaður PSG og verður klár í slaginn á morgun."


PSG er með níu stig eftir fjórar umferðir og fær Strasbourg í heimsókn á morgun. Eina tap PSG kom gegn Rennes.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner