Fotbolti.net
04.10.26 - 13:02
Brynjar Ingi Erluson

Porro sagður vilja yfirgefa Tottenham eftir tímabilið

Pedro Porro

Pedro Porro

Canon

Mynd: EPA

Spænski bakvörðurinn Pedro Porro vill fara frá Tottenham eftir tímabilið. Þetta segir spænski blaðamaðurinn Juan Jesus.
Aðeins nokkrir mánuðir eru síðan Porro skrifaði undir nýjan langtímasamning við Tottenham.

Spánverjinn hefur verið einn mikilvægasti leikmaður liðsins undanfarin ár en Tottenham hefur gengið illa þrátt fyrir nokkuð sterkan leikmannahóp. Liðið hefur byrjað tímabilið ömurlega, er á botni deildarinnar með aðeins tvö stig og þegar dottið úr leik í enska deildabikarnum.

Samband Porro og Roberto De Zerbi, stjóra liðsins, er sagt versna með hverjum deginum og þeir eiga að hafa tekist á fyrir framan leikmannahópinn. Það eru því vaxandi líkur á að Porro fari aftur til Spánar.

Hann er sagður vilja fara frá Tottenham annað hvort í janúar eða næsta sumar og Barcelona er sagt leiða baráttuna um Porro sem varð heimsmeistari með Spánverjum í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.