Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. september 2022 12:30
Elvar Geir Magnússon
Heimild: 433.is 
Hugur Aziz að spila í Bestu deildinni á næsta tímabili
Lengjudeildin
Spilar Aziz í Bestu deildinni?
Spilar Aziz í Bestu deildinni?
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Belgíski miðjumaðurinn Marciano Aziz vakti mikla athygli með Aftureldingu í sumar og var valinn í lið ársins í Lengjudeildinni. Hann hefur skorað tíu mörk í tíu leikjum.

Aziz er 21 árs gamall og kom til Aftureldingar á lánssamningi frá Eupen í Belgíu þar sem hann á eitt ár eftir af samningi.

„Hann er opinn fyrir því að fara aftur til Íslands og vill spila aftur á Íslandi. Honum leið rosalega vel í Aftureldingu," segir Bjarki Már Ólafsson hjá Stirr Associates, umboðsskrifstofu leikmannsins, í samtali við 433.is.

„Hugur hans er að spila í efstu deild á Íslandi. Hann var mjög ánægður með þessa reynslu og þetta var það sem hann þurfti á þessum tímapunkti. Nú telur hann að tími sé kominn til að taka næstu skref á sínum ferli. Ef honum býðst tækifæri til að spila í efstu deild á Íslandi væri það eitthvað sem hann væri mjög opinn fyrir."

Afturelding er í sjötta sæti Lengjudeildarinnar en lokaumferðin verður leikin á laugardaginn.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner